Keppni í Loftriffli á Reykjavíkurleikunum er nú lokið. Í unglingaflokki sigraði Sigurlína Wium Magnúsdóttir með 566,8 stig, Úlfar Sigurbjarnarson varð annar með 521,1 stig og bronsið hlaut Starri Snær Tómasson með 348,2 stig. Þau koma öll úr Skotfélagi Reykjavíkur. Í opna flokknum sigraði Íris Eva Einarsdóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur með 236,4 stig, Jórunn Harðardóttir einnig úr Skotfélagi Reykjavíkur varð önnur með 234,6 stig og í þriðja sæti varð Leifur Bremnes úr Skotíþróttafélagi Ísafjarðar með 205,8 stig. Í flokki fatlaðra hlaut Þór Þórhallsson gullið í SH2-R4 með 620,4 stig og í flokki SH2-R5 með 624,4 stig.
Keppni í Loftriffli lokið á RIG í Laugardalshöll
By Guðmundur Kr. Gíslasson|2025-01-27T07:20:49+00:00January 26th, 2025|Mót og úrslit|Comments Off on Keppni í Loftriffli lokið á RIG í Laugardalshöll