Um helgina fór fram á Akureyri Íslandsmeistaramót í BR50 riffilkeppninni, þar sem skotið er með cal.22 rifflum af borði. Talsverður vindur var báða dagana og því engin toppskor, heilt yfir. Í Sporter flokki sigraði Kristján Arnarsson, í léttum riffli sigraði Pétur Már Ólafsson og í þungum riffli sigraði Davíð Bragi Gígja. Hjá unglingunum var einokun á sigrum, en Hólmgeir Örn Jónsson vann alla flokkana og bætti Íslandsmetið í Sporter flokki um 11 stig. Nánar á úrslitasíðu STÍ.