Landsmót STÍ í riffli á 50 metra færi úr liggjandi stöðu fór fram á Ísafirði í dag. Valur Richter úr SÍ sigraði í karlaflokki með 607,7 stig, Guðmundur Valdimarsson úr SÍ varð annar með 606,1 stig og Þórir Kristinsson úr SR varð í 3ja sæti með 606,0 stig. Í kvennaflokki vann Jórunn Harðardóttir úr SR gullið með besta skor dagsins, 608,2 stig og Guðrún Hafberg úr SÍ hlaut silfrið með 566,5 stig. Karen Rós Valsdóttir úr SÍ hlaut gullið í flokki unglinga með 511,9 stig. Í liðakeppninni hafði lið SÍ gullið með 1812,6 stig en lið SR var með 1802,1 stig. Nánar á úrslitasíðunni
Landsmót í 50 metra riffli á Ísafirði í dag
By Guðmundur Kr. Gíslasson|2023-03-05T09:23:39+00:00March 4th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Landsmót í 50 metra riffli á Ísafirði í dag