Compak Sporting Alþjóðareglurnar 2021
- Keppt er í Compak Sporting á Heimsmeistaramótum og Evrópumótum. Hér heima á mótum STÍ auk innanfélagsmóta.
- Aldur: 20 ára til að fá leyfi fyrir eigin byssu en 15 ára til æfinga hjá íþróttafélögum
- Byssur: Oftast tvíhleyptar yfir undir haglabyssur en einnig er leyfilegt að nota hálfsjálfvirkar haglabyssur en þá skal magasínið þrengt þannig að það taki ekki nema 1 skot.
- Búnaður: Hlífðargleraugu, oft sérhönnuð skotgleraugu, heyrnarhlífar og skotvesti. Skot og leirskífur.
- Færi: Breytilegt
- Keppni: Skotið er á leirdúfur sem kastað er með a.m.k. 6 sjálfvirkum kastvélum. Skotið er alls 100 eða 200 skotum eftir stærð móta.
- Félög: Skotfélag Reykjavíkur, Skotíþróttafélag Hafnarfjarðar, Skotíþróttafélag Suðurlands, Skotfélag Ólafsfjarðar, Skotfélag Akureyrar, Skotdeild Keflavíkur, Skotfélagið Markviss ofl.
- Keppnistímabil: 1. apríl til 1. október.