Evrópumeistaramótinu í haglabyssu var að ljúka og náði Sigurður Unnar Hauksson bestum árangri okkar keppenda en hann hafnaði í 46.sæti af 70 keppendum með 115 stig (23 24 21 22 25), Hákon Þór Svavarsson endaði með 113 stig (19 24 23 22 25) og Stefán Gísli Örlygsson með 112 stig (23 24 21 24 20). Til þess að komast í úrslit þurfti 122 stig af 125 mögulegum. Helga Jóhannsdóttir náði 90 stigum (15 24 16 17 18) í kvennaflokki og hafnaði í 36.sæti af 37 keppendum. Til að komast í úrslit í kvennaflokki þurfti 118 stig af 125.