Íslandsmótið í Frjálsri skammbyssu var haldið í Egilshöllinni í dag. Íslandsmeistari varð Ásgeir Sigurgeirsson úr Skotfélagi Reykjavíkur með 549 stig, í öðru sæti varð Jórunn Harðardóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur með 512 stig og í þriðja sæti Bára Einarsdóttir úr Skotíþróttafélagi  Kópavogs með 482 stig.

A-sveit Skotfélags Reykjavíkur varð Íslandsmeistari liða með 1,502 stig en sveitina skipuðu þau Jórunn og Ásgeir ásamt Guðmundi Kr. Gíslasyni (441). B-sveit Skotfélags Reykjavíkur með þá Engilbert Runólfsson og Þorstein Bjarnarson innaborðs.