Landsmót STÍ í skeet fór fram á velli Skotíþróttafélags Suðurlands um helgina.

Í kvennaflokki sigraði Helga Jóhannsdóttir úr SÍH með 58/75 stig og 31/60 stig í úrslitum
Dagný Hinriksdóttir úr SR varð önnur á 46/75 og 27/60 og Eva Ó. Skaftadóttir úr SR varð 3ja á 26/75 og 20/60.
Þórey Helgadóttir úr SR varð 4ða en hún skaut sig upp um flokk . Lið Skotfélags Reykjavíkur (SR) í kvennaflokki setti Íslandsmet upp á 113 dúfur

Í karlaflokki sigraði Hákon Þ. Svavarsson úr SFS á 113/125 og 54/60 í úrslitum sem er nýtt Íslandsmet í úrslitum.
Stefán G. Örlygsson úr SKA varð annar á 115/125 og 50/60
og þriðji varð Jakob Þ Leifsson úr SÍH á 99/125 og 40/50 .

Einnig voru Stefán G. Örlygsson og Helga Jóhannsdóttir krýnd Suðurlandsmeistarar .